Jæja nýtt met í skólaviðveru var sett í dag, já kæru vinir ég gerði mér lítið fyrir og sló 1 árs gamalt met sem hljóðaði uppá 16 tíma og bætti það um 3 tíma
já þetta er skemmtilegt eða þannig, sat uppá teiknisal frá 8.30 um morguninn til hálf fjögur í nótt var svo komin aftur uppí skóla 9 í morgunn þetta er ljúfa líf þessa dagana híhí
Enn ég fékk reyndar bestu krítík hingað til líka, þannig alveg þess virði :) Þeir sögðu að þeir hefðu ekkert útá það að setja og það væri vel gert
öööö ég vissi ekki hvort eg ætti að hlæja,gráta,garga eða prumpa , þessi tilfinning er örugglega svipuð því að vinna óskarinn hehe
Enn í frammhaldi af þessu þá er ég nú ekki þekkt fyrir að hlaupa frá góðum mat og hvað þá makka D enn það gerðist í gærkvöldi í matarhléinu mínu. Var ein að troða í mig þegar ég tek smá pásu til að draga andann á milli bita og er litið í kringum mig.
Þá situr kona ekki svo langt frá mér og greinilega þokkalega biluð á geði og starir á mig eins og það sé enginn morgundagur , ég sneri mér í aðra átt og þá situr indverji einn á næsta borði og er með einhverja kippi og er að leika sér að því að láta stólinn vera að fara að detta á gólfið og grípa hann svo á seinustu stundu.
Þegar ég var svo hálfnuð með kræsingarnar byrjaði hann að kalla að fólki sem var í salnum eitthvað sem hvorki ég né restin af fólkinu skildi
Mér leist ekkert á blikuna og dreif mig út og skildi hálfan stóra Makk eftir
Næst verð ég sparsöm eins og Danirnir og tek með mér nesti

Góða helgi hvar sem þið eruð niðurkomin ég er farin að crash-a á sófanum
4 ummæli:
haha snilldar hengi. Já ég mundi nú bara taka með mér nesti ef ég væri þú.
Annas bið ég bara að heilsa.
Kv.Högni
já gaman að ekkert breytist i danaveldi og allir jafn klikkaðir en hehe bið að heilsa
Kveðja Viðar
Bídduuuuuu skildir þú eftir Big mac....þá hlíturðu að hafa verið orðin ansi skelkuð af því að ég hef ekki séð það gerast uuuuuuu nema að þú sért með gubbuna eftir djamm hihihih
Vá hvað ég væri ekki til í að eiga svona sturtuhengi, það hlítur að vera svona svartur skuggi líka sturtumegin og í hvert skipti sem maður opnar augun í sturtunni þá finnst manni eins og það sé morðingi þarna ojjjjj ég myndi fríka út....ég ætla að vona að þetta verði ekki jólagjöfin frá þér í ár nema þú viljir gefa mér hjartaáfall
kiss og knús, Tanja
nei sko vidar komin i samband við umheiminn velkomin til siðmenningarinnar hehe. Engar ahyggjur nr 2 þetta með makka D mun ekki gerast aftur án alchohols i blóðinu ég se ennþá eftir honum og þú færð eitthvað ennþá hrædilegra frá mér í jólagjöf hahah kisskiss
Skrifa ummæli