fimmtudagur, 9. október 2008

Back from the dead

Heil og sæl
Sökum leti, ritstíflu og facebook hefur ekkert verið sagt hér undanfarna mánuði enn ég ætla nú að ath hvort ég geti ekki bætt úr því.
Enn svona til að taka upp þráðinn aftur þá tók nú þessi hverfissúpa mig heldur betur í rassgatið, svo harkalega að það blæðir enn.
Jájá í staðinn fyrir að taka kíló frá þá bætti kvikindið á mig 5 í viðbót.
Þannig að henni var skolað niður klósettið og hef ég ekki séð hana síðan Guði sé lof

Blondínan hefur silgt sinn sæ og dökkhærður stutthærður rokkari hefur litið dagsins ljós. Sem hefur nú bara vanist ágætlega, galdurinn er bara vax,vax og meira vax og ekkert að greiða mér. Mjög hentugt svona á morgnana þegar maður er að flýta sér.

Nú fer að styttast í hið árlega grímuball skjoldhoj og ég er alveg blanc veit ekkert hvað ég á að vera tillögur eru vel þegnar enn það má ekki kosta mikið.
Var jafnvel að spá hvort maður ætti að hafa þema þetta árið KREPPA kemur fyrst upp í huga minn enn það á eftir að koma í ljós
Læt þetta duga í bili addijós

3 ummæli:

Fannar Jens sagði...

já snilld, ég hefði verið svo til í að vera hérna sem Davíð Oddson eða Geir H Haarde...

Bið að heilsa, sjáumst fljótt eftir kreppu!

LILJA: sagði...

Já það hefði sko verið ódýr búningur: Horn,skott og gaffall= djöfull í mannsmynd. Hlakka til að fá þig aftur snúlli

Nafnlaus sagði...

jebb ætli madur vefji sig ekki bara inn í klósettpappír svona almennilegur kreppubúningur......